Aðalvalmynd

JÓLIN

Auglýsing

Jólafrí!!

MYNDIR

www.picasaweb.google.com/janajons

Saga Sigga og Sædísar

  • Nafn: Sædís og Siggi
  • Staður: Raufarhöfn og Bíldudalur og Reykjavík
  • Atvinna: Húsvörður í Ármann-Þróttur, Þvottakona og Afgreiðsla í skóbúð.
  • Hjúskaparstaða: Á föstu
  • Um mig: Við erum 19 og 20 ára sakleysingjar sem eiga það sameiginlegt að borða mikið, elska að sofa og komum bæði frá oggupoggusmábæjum norðan og vestan heiða! Við erum búin að vera saman í 1 ár og elskum hvort annað meira en allt:*

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Plan Mánaðarins!

Desember:
- vinna
-Fara heim til Raufarhafnar í Jólafrí
- Opna pakka
- Borða mikið
-Hafa geðveikt gaman:)

Undirsíðukubbur

Klukkan

Innskráningar kubbur

Leit

Könnun

Hvar verður þú um jólin?

stígvélaæði

05. apríl 2009 klukkan 11:07
góðan og blessaðan daginn!

Ég er ennþá í mikilli sæluvímu eftir gærdaginn!! Frétti á föstudaginn að það væri einhver skómarkaður upp í norðlingaholti. Og ég náttlega reif Sigga með mér strax og hann vaknaði um 12 leitið að athuga hvort það væri eitthvað varið í þetta. Guð minn góður sko, ég er að segja ykkur það, ég var komin með um 5-6 pör af flottum stígvélum, ekta leður, og missti mig næstum því, þess vegna tók ég sigga með mér hehe, en ég endaði með 3 stígvéli á 11 þús samtals!! Vá ég er svo ánægð að þið trúið því varla haha! Ég mæli með að allir fari þangað og geri góð kaup!!!

En annars er allt fínt að frétta:) páskarnir nálgast óðfluga og ég get ekki beðið eftir því að fara heim!! hitta alla og spjalla endalaust!!:)

Svo er ég líka búin að ákveða hvaða nám ég ætla í, ég ætla í Félagsráðgjafann í HÍ, er búin að vera að skoða þetta nám og líst alveg þrælvel á þetta:) Er orðin geðveikt spennt, bæði ég og siggi:) Getum ekki beðið eftir því að fara að læra:)

En hún litla frænka mín hún Kolbrún Kara á afmæli í dag og hún er 4 ára lítil dúlla:* Og við ætlum að skreppa í bifröst í dag í afmæli;)

En annars er ég að pæla að fara að skella mér í sund, og draga Sigurð á lappir með mér;)

I'll see ya when I'll see ya;) 

Komin smá tími til!!

21. mars 2009 klukkan 12:21

Góðan og blessaðan:) vegna hina mörgu áskorana frá Fridda mínum um að henda nýju bloggi hérna inn þá hef ég ákveðið að verða að ósk hans:)

Það er nú alveg mikið búið að gerast síðan ég bloggaði seinast..uu þorrablótið er búið að vera og það var geggjað, við djömmuðum til 7 eða 8 um morguninn og það er langt síðan það hefur gerst!!! Enda var flugferðin ekki sú skemmtilegasta daginn eftir hehe:) En alveg snilldar þorrablót og eitt skemmtilegasta ball sem ég hef farið á á Raufarhöfn, þó svo að það hafi mátt vara í um 3 klst lengur að mínu mati;)


Takk kærlega fyrir það:)

Svo er það bara vinnan, en maður er nú alveg komin með ofan í kok að vinna..EKKi það að maður nenni ekki að vinna sko, en það bara að mig langar svo að klára að mennta mig og vinna við eitthvað sem ég hef áhuga. Ég er sko búin að fara inn á vef HÍ á hverjum degi til að skoða eitthvað sem ég myndi vilja læra og er komin með smá í pokahornið:) Sem verður upplýst síðar:)

já svo var það afmæli Tinnu Rúnar sem var frábært í alla staði:)



Langar svo geðveikt að fá sumarið, annars er ég svona vetrarmanneskja smá, mér finnst fínt að hafa veturinn í smá stund með miklum snjó, en svo sumar:)

Sakna allra sem eru milljón km frá mér, familíunnar, vinanna!! Vildi að ég væri jafn rík og þessir útrásarvíkingadjöflar og gæti bara átt einkaþyrlu og flogið á nótime þangað sem ég vildi vera!!

EN nóg um það, afmæli hjá Gyðu babe í kvöld og þarf maður að fara að undirbúa í hvaða dress maður á að fara í og svona:)

En Gyðababe til hamingju með daginn, sem var reyndar á þriðjudaginn:) Ég sé til þess að þú skemmtir þér mannabest í kvöld, eins og þér einni er lagið:)

 

Heyrumst:)!

Áramótaannáll 2008

02. janúar 2009 klukkan 22:48

Komiði sæl og bless!! og gleðilegt nýtt ár, takk fyrir það gamla;) 
Ég hef ákveðið að gera áramótaannál, og deila með ykkur það sem ég og herra Sigurður erum búin að vera að gera af okkur á árinu 2008(á ábyggilega eftir að gleyma einhverju en ég reyni að muna allt hehe:):

Janúar:

- vorum að springa, búin að þyngjast um 20 kíló hvort eftir jolasteikina eins og með öll önnur ár líka reyndar, en héldum á back to Laugar.


- Ég var að deyja úr spenningi, því Tinna Rún var að koma aftur á Laugar mér til mikillar ánægju og yndisauka:)
 
- Önnin byrjaði með vel, við skráðum okkur í bootcamp og það var geðveikt;)

- Það var farið í bústað, sem var crazy skemmtilegur!!! Og sumir fundu ástina í þeim bústað, en aðrir voru löngu búinir að finna hanaKiss það var mikið legið í pottinum sem var risavaxinn og mikið reynt til þess að gera froðu í pottinn, sem gekk misvel, Óli Jón og Einar sjálfskipuðu sig sem lífverðir og útkastarar úr þessu sumarbústaðarpartíí og gekk þeim nokkuð vel:) Frábært Partý og yndislegt fólkKiss



Febrúar:
- Þorrablót á Raufarhöfn átti sér stað eins og vanalega og drösluðum við Raufarhafnarkrakkar laugafólki hingað eins og vanalega og gekk allt vel(fyrir utan smá hurðalæsingar og hurðauppbrjótanir) og var mjög gaman, sumir komust ekki einu sinni á ballið en aðrir létu ekki einu sinni renna af sér allan tímann;)

- Bootcamp hélt áfram
- Pabbi gamli varð 50 ára og  Begga lilla varð 16 og fórum við heim til Raufarhafnar í veislu til gamla
- Ég og Siggi vorum búin að vera saman í 1 árKiss Og elskum hvort annað meira en allt!!

- Tinna Rún átti líka afmæli 27. feb og vorum við búin að plana heljarinnar afmælispartý hjá henni, Valbjörgu og Kristínu, ætluðum að fara til AK með afmælisskvísuna. En það endaði ekki eins vel og við héldum, lentum í bílslysi, Andrea hálsbrotnaði, ég tognaði í hálsi, tinna meiddist á hnéi..en við erum öll heil í dag sem betur ferSmile Þökkum Guði fyrir það!

Mars:
- Við hættum allar í bootcamp sem lentum í slysinu, en Siggi hélt áfram.
- Birkir og Sigrún eignuðust lilla baby:) Rosa sæturKiss

- Við fórum í Páskafrí til RVK sem var mjög gaman

Apríl:
- Vá man bara ekki eftir neinu sem gerðist í Apríl sem var eitthvað spes!

Maí:
- Tinna og Jara héldu upp á afmæli sitt á dátanum, geðveikt gaman;) Seinasta djammið mitt á Laugum sem nemi, og var það fínt og geðveikt skemmtilegt afmælisdjamm með stelpunumWink

- Prófin byrjuðu og mikið prófstress að reyna að ná öllum prófunum !! En það tókst
- Við fengum íbúð á besta stað í RVK, elskum litla ástarhreiðrið okkar:)

- Ég útskrifaðist frá Laugum 24. Maí, skrítnasta tilfinning í heimi, en samt góð og vont að fara frá Laugum forever!

- Ég hélt útrskiftarveislu á Rauf 31. Maí, sem heppnaðist mjög velSmile Svo var farið á sjómannaballið eftir á sem var allt í lagi!

Júni:
- Ég flaug úr hreiðrinu frá mömmu og pabba og flutti í borg óttans!
- Ég fékk vinnu 1/2 daginn í þrótti og 1/2 daginn í Outlet skómarkaði og var að vinna 10 tíma á dag um allt sumarið flest alla laugardaga í 4 tíma, mikil vinna!!
- Ég átti afmæli og varð 20 ára loksins!!! Siggi vakti mig upp með egg og bakon og köku, sætastur´!! Fórum í keilu, út að borða í perlunnni og djamm fram á rauðanótt!!!

- Ég og siggi keyptum okkur kanínuskratta sem við skírðum snáða, en svo komst það upp að hann er hún og því heitir hún rúsla, en er samt alltaf kölluð snáða

- Amma Lína dó, hvíli hún í friðiFrown

Júlí:
- Sá mánuður byrjaði ekki vel, Sævar frændi dó, hvíli hann í friðiFrown
- Ég fór heim í nokkra daga á 2 jarðafarir, ekki mjög skemmtilegur þessi mánuður

Ágúst:
- Fórum í bústað með mömmu, pabba, beggu, gumma og signý og stelpunum, vorum þar yfir alla verslunarmannahelgina, geðveikt næs:)
 
- Maður reyndi að vera eins mikið úti í sólinni til að fá smá tan, en ég gafst upp á því...
- Það var kýpurfarareunion sem var geðveikt skemmtilegt!!

- ég sagði upp vinnunum báðum



September:
- ég fór í 2 vikna frí til Raufarhafnar og fór mikið á hestbak og borðaði mikið og alles
- fékk nýja og miklu betri og skemmtilegri vinnu í Fönn og vinn þar enn

Október:
-djammaði eitthvað, ekkert merkilegt samt...

Nóvember:
- Reyndi að byrja í einhverju rosa átaki fyrir jólin, það gekk ekki eins og það átti að vera hehe

Desember:
- Ég og Sallý tókum fyrstu helgina í eyðslusjússi keyptum fullt af jólaskrauti og skreyttum íbúðina hátt og lágt!!
- Ég fór að skrifa jólakort, sem ég bjó öll til sjálf!!! Dugnaður!!
- Keypti fullt af jólagjöfum!!
- Eyddi langt fram yfir allt!!!
- Fór síðan heim í jólafrí sem er búið að vera geðveiktCool 
- Saknaði sigga míns!!!
- Fékk fullt af flottu í jólagjöf! Fékk alltofdýran síma frá sigga, svona 3G sími sony ericsson     K660i hehe ef það segir ykkur eitthvað!! Fékk geðveika tösku frá friis og company frá Sallý og Láru, föt og allskyns, svo fékk ég heimatilbúna draumaráðningabók frá Tinnu minni, rosa flott:). Takk fyrir!
- Það var partý heima hjá Fridda babe 3svar og það var mjög gaman í öll skiptin!!Cool
- Siggi minn kom til mín og Gummi, Signý og stelpurnar komu og voru hjá okkur yfir áramótinSmile Bestu áramót ever:)


Svona var mitt ár 2008Smile Og holy fokk shit ég er búin að vera 2 tíma að gera þetta!!!

Er búin að taka milljón myndir yfir jólin sem ég set inn þegar ég nenni á myndasíðuna mína!

BlessÍBili!!

...

28. desember 2008 klukkan 13:55

Gleðileg Jól
Gott og farsælt komandi ár
heyrumst á nýju ári!!

Ojj

12. desember 2008 klukkan 11:45
Hvað er að gerast á Íslandi, hverskonar viðbjóðsfólk er hérna meðal manna?!!

Tvær fréttir af mbl.is, sem komu með dagsmillibili:

Frétt 1:

Ökukennarinn Haukur Helgason var dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir brot gegn fjórum drengjum. Haukur gekkst við flestum ákæruliðunum en taldi sig ekki hafa framið lögbrot.

Frá vori 1996 til nóvember 1998 kenndi Haukur pilti á aldrinum 14-17 ára á skellinöðru. Í tugi skipta fróaði hann piltinum en kynferðismökin áttu sér oftast stað á heimili Hauks eða í bifreið hans í Heiðmörk. Í nokkrum tilvikum í ökutímum en einnig á ferðalagi þeirra tveggja til Skandinavíu og Þýskalands sumarið 1997 eða 1998.

Á sama tímabili kenndi Haukur pilti á sama aldri á skellinöðru og síðar bifreið. Hann fróaði piltinum að jafnaði einu sinni í viku en kynferðismökin áttu sér stað á heimili Hauks í Reykjavík en einnig í ökutíma í bifreið hans í Heiðmörk.

Þriðja piltinum kenndi Haukur einnig á skellinöðru og braut hann gegn blygðunarsemi hans í 2-3 skipti frá hausti 2002 til vors 2003. Brotin áttu sér stað í bílskúrum í Garðabæ og Hafnarfirði en piltinn fékk hann til þess að afklæðast og tók af honum fjölda mynda þar sem pilturinn var fáklæddur eða nakinn. Pilturinn var 15 og 16 ára þegar brotin áttu sér stað.

Einnig var Haukur dæmdur fyrir að hafa fjölda annarra mynda í fórum sínum. Myndirnar voru ýmist af fyrrgreindum piltum eða fjórða piltinum. Á heimili Hauks var samtals lagt hald á 3804 ljósmyndir sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Margar myndanna tók hann sjálfur. 83 ljósmyndir fundust í myndaalbúmi, 87 ljósmyndir á filmum sem voru framkallaðar, á minniskorti fundust 194 ljósmyndir og 3440 myndir fundust á átta geisladiskum.

Frétt 2:

Þrjá stúlkur allar innan við tvítugt voru dæmdar í Hérðasdómi Reykjavíkur í morgun fyrir hrottalega árás á jafnöldru sína. Meðal annars stungu þær sígarettu í líkama hennar og neyddu hana til að borða sígarettuna.

Tvær stúlknanna fengu sex og fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm til tveggja ára. Þriðja stúlkan hafði áður hlotið 12 mánaða fangelsisdóm fyrir að hafa borið fíkniefni innvortis sem hún var tekin með í Leifsstöð, hún afplánar nú þann dóm og var ekki gerð sérstök refsing fyrir aðild sína að þessu broti.

Árásin sem er nokkuð hrottaleg átti sér stað þann 2.júlí á síðasta ári í aftursæti bifreiðar sem var í Fossvogskirkjugarði. Stúlkurnar þrjár voru þá sextán, sautján og átján ára. Þær veittust í sameiningu að fjórðu stúlkunni, sem var þá átján ára, slógu hana í andlit og líkama, hræktu á hana og helltu yfir hana gosi. Þá stungu þær logandi sígarettu í líkama hennar og neyddu hana til að borða sígarettuna.

Að þessu búnu neyddu þær hana til að afklæðast jakka og bol og kastaði ein árásarstúlknanna af sér þvagi á fötin. Þær hótuðu henni lífláti gæfi hún nöfn þeirra upp hjá lögreglu, óku henni síðan klæðalítilli að Perlunni og því næst að Suðurhlíð, þar sem ein árásarstúlknanna dró hana út úr bifreiðinni, sparkaði í nokkur skipti í líkama hennar og skipaði henni að hlaupa í burtu.

Við atlöguna hlaut fórnarlambið mar á vinstra gagnauga og glóðarauga, brunasár á hægri öxl og tungu og rispu og mar undir hægra brjósti.


Hverskonar "mannfólk" er til hérna á landinu okkar?? Í alvöru þetta er viðbjóður...

ojj..

JólaJólaJólaJólaJólaJóla!!

04. desember 2008 klukkan 12:12

Það eru 15 dagar þangað til ég fer í Jólafrí!!

Það eru 3 dagar þangað til Siggi minn skilur mig eina eftir í borg óttans til að taka próf á Laugum!!

Það eru 20 dagar í Jólin!!

Það eru 27 dagar í Nýtt ár!!

Vá mér finnst eins og árið 2008 hafi rétt svo verið að byrja...jesús hvað þetta lýður hratt, maður verður orðin 40 áður en maður veit af!!

Fór til Tannsa í 1. skipti í 5 ár og var ekki með neina skemmd, en brotnað úr 2 fyllingum sem þarf að laga þannig að allt þetta tannsastúss kostar mig um 40 þús!!!!!

Get samt ekki beðið eftir því að fara heim í Jólafrí, er komin með leið á Rvk og öllu stressinu og dónaskapnum!!

.....

Later!

Norðan 22 m/s, snjókoma og frost!!

27. nóvember 2008 klukkan 12:32

Ég er núna í fyrsta sinn á ævi minni að eyða vetrinum hérna sunnan meginn á Landinu...og það er mjög fínt..eða get ég kallað þetta vetur, þegar versta veðrið er þá er frost, svona kannski 10 m/s og ef maður er heppinn svona 1 cm úrkoma!!

Ég hef alltaf verið á norðurlandi þegar veturinn gengur í garð og ég get sagt ykkur eitt!! Það sem ég vildi óska mér núna væri að ég væri stödd heima á Rauf inn í stofu með kertaljós því rafmagnið er ekki á, úti eru 25 m/s með blindhríð og bullandi frosti!!! Kúrir sig með familíunni með kerti og kex!

Svo daginn eftir eða jafnvel eftir 2 daga, þá fer maður út og þá er allt á KAFI í snjó!!!!

Já ég hef aldrei getað verið sú manneskja sem hatar veturinn, ég gæti til dæmið aldrei búið í einhverju landi þar sem er 20 stiga hiti allt árið...

Þannig að þið sem eruð Norðan heiða...Ég ÖFUNDA ykkur hræðilega!!!

EN að öðru, við skelltum okkur á Laugar/Ak um helgina og var þetta ein skemmtilegasta helgi í veturSmile að fá að hitta alla og spjalla fram á nótt..hitta beggu syss...fórum síðan til ak á Laugardaginn, ég, TInnaR og Valla fórum á okkar bíl og við keyrðum á svona 60 alla leið heheCool EN það var samt fínt, því við höfðum hvort eð er svo mikið að talaWink Hitti svo Tinnu mína á ak og djömmuðum allar saman us GÖRLS...og það var geggjað, Palli minn var geggjaður eins og alltafWink En svo í lok kvöldsins þurfti einhver helv. Tu"##$%" að meiða Andreu mína og ég fór beint upp á slysó til hennar (rétt eftir að Ella var næstum búin að nefbrjóta mig þegar hún ætlaði að faðma mig en við náðum einhvern veginn að skalla hvor aðra heheCool) en hún var næstum ómeidd, sem betur fer...

Núna er ég bara í vinnunni....oG það eru 22 dagar þangað til ég fer í jólafríLaughing

ÉG HLAKKA SVO TIL!!!!!

KV. Sædís sem vildi óska að hún væri stödd í brjálaðri stórhríð á Raufarhöfn!!




Spurning dagsins!

20. nóvember 2008 klukkan 12:27


Erum 'VIÐ' hryðjuverkamenn, eða þeir????

En annars er allt gott að frétta, ætla að skrifa nokkra punkta um það hvað hefur á mína daga drifið:

- Ég hætti sem sagt að drekka, en ekki í þeim skilningi sem sumir halda, þetta var nefnilega tímabundin
lækning til að venja mig af þeim ljóta ósið að reykja á djamminu, sem vitið menn, virkaðiWink

- Ooog Lalli Boy átti afmæli + Jossue kærasti Díönu og við fórum nú rækilega á djammið þá!! Djísús kristur...fórum á sóðalegasta og ógeðslegasta bar í bænum og enduðum öll með vott af áfengiseitrun daginn eftir..NOT FUN..*oj* *ÆL*

- Helgina eftir höfðum við Siggi Kósý og svo á Laugardeginum fórum við á Palla á Nasa, og það var crazy gaman, vorum bæði Edrú og ef það er einhver sem kemur manni alltaf í stuð þá er það My Dear Paul.!!

- Svo seinustu helgi þá fórum við í mat til Sigrúnar og Birkirs + Villi í Keflavík og það ver geggjað, alltaf gaman að sjá þau! Við verðum að gera þetta oftar guys! Óó svo var Matthías Leon svo mikill dúllurass..

-Nú daginn eftir þá ákváðum við að fara í heimsókn til Gumma Bró á Bifröst, Mamma var þar og litlu dúllurnar..óó svo elskulegar líka..þetta var greinilega mjög elskuleg helgi og bissý!! frá keflavík til bifrastar! En mjög skemmtilegSmile

- Svo núna þessa helgi þá erum við að fara til LAUGA!! Fokk í shitt ég hlakka svo til!!! Siggi að fara að keppa í fótbolta og ég að fara að hitta allar heittelskuðu ástarbomburnar mínarKiss Þetta verður snilld..svo Palli í Sjalla á LaugardaginnCool Kannski að maður skelli sér aftur hehe 2 í einum mánuði er Sko EKKI of mikiðWink ehhe

Frétti líka að konukvöld á Raufarhöfn væri núna um helgina og ég er nú ekki satt við það! Mig langaði nefnilega líka á það, en það er greinilega ekki hægt að gera 2 í einu!! Undecided

En er í Vinnunni..á sko EKKI að vera að blogga hehe!!

Chao...og VIÐ sjáumst á Morgun LAUGAGELLUR!!!Kiss

I'd rather smell a dead Mooses but!!

18. október 2008 klukkan 11:43
Guten Tag meine Frau und Herre!!
Wie Geht's?


Jæja, sólin skín, í fyrsta skipti í milljón ár finnst mér hérna í Rvk. Mér finnst það búin að vera rigning í svona 4 mánuði. En í dag er sól..jeijj...

En það hefur margt á mína daga drifið. Ég skal byrja á að segja ykkur hvað ég gerði skemmtilegt last weekend:

Föstudagur: vann lengi, kom heim og langaði í bíó en nennti samt ekki, þannig að ég og siggi ákváðum að fara í vídjóhöllina og leigja eina spólu en komum út með 13 stk hehe, það var verið að selja  fullt af vídjóspólum og við keyptum 13 stk fyrir 2150 krLaughing Alveg vel sátt með það..svo var haldið heim og límt sig við Tvið..

Laugardagur: Vaknaði upp fyrir allar aldir eins og venjulega og hámaði í mig Lucky Charms...fór og glápti á eina af vídjóspólunum mínum og þá hringdi Gyða í mig og dró mig í Kringluna með sér. Þar eyddi ég seinustu krónunum mínum (eða næstum...Cool keypti mér buxur og skyrtubol í vero Moda..elska þessa búð..þetta er eina búðin sem maður getur farið inn í og verslað sér fleiri en 1 flík undir 10000 krWink Svo fór ég heim og tók smá til og eftir smá stund var Friddi Babe komin í bæjinnn til mínLaughing Loksins:) Við fórum á KFC og lentum þar í einum freðnasta afgreiðslumanni Islands, hann missti bitanna í gólfið og lala...ekki alveg að meika það. Svo fórum við heim og gúffuðum í okkur eins og okkur einum er lagið heheCool Svo kom Gyða til okkar en hún var að fara á Oktoberfest í háskólanum annaðkvöldið í röð..og fær hún hrós vikunnar frá mér að getað djammað í tvö kvöld í röð í 12 tíma og verið lifandi daginn eftir!! Amen...Laughing Nú svo bættist Anna í hópinn og sátum við og spjölluðum heillengi þangað til við ákváðumað fara niðrí bæ heim til Önnu og þar bættist hin nýgifta Frú María í hópinn sem var líka bænumLaughing, ég var að sjálfsöðgu the Drivaa og skunduðumst við þangað á Ignisnum...
Sátum þar heillengi og fórum síðan á Qbar og dönsuðum þar smáog ætluðum þá á Sólon..en þá voru helv(&/$%& búin að hækka aldurinn í 22!!! Mér var orðið eitthvað illt í mallanum þannig að ég fór heim og skildi raufsarana eftir til að djamma af sér rassinnCool Fór heim horfði á mynd, svo kom Friddi og égfór að sofa um 4-5..

Sunnudagurnn: Vorkenndi Fridda mínum því hann var næstum glær af þynnku, en var ánægð með mig að hafa ekki drukkið neittLaughing Svo fór hann heim, og ég horfði á neibba og hékk hérna heima þangað til að siggi og Sallý komu heim og við elduðum Crazy góða pizzu og horfðum á Dagvaktina og svarta engla...þetta var svo skemmtilegt kvöld að við ákváðum að gera þetta að hefð á hverjum sunnudegi...núna á sunnudaginn á að vera humarveisla nammmmmTongue out

Værsjago..Svona var seinasta helgin mín...Svo núna í vikunni fór ég út að borða með Gyðu, Díönu, Maríu og Birgittu litla unganum hennar maríu á Ruby og spjölluðum heillengi..Takk fyrir þaðWink

Svo fórum ég og Gyða í bíó í gær á The Women..égæt afþreying, ég gef henni samt bara svona 5/10, eftir bíóið sátum við út í Ford Kainum hennar og spjölluðum í 40 mín sem var eiginlega skemmtilegra en myndinCool

Og núna er kominn önnur, og ætla ég mér ekki að gera NEITT..sökum Kreppu...eða ég kenni henni bara um það heheSmile

Tinna og Jói, Begga Syss, Tinna Rún, Valbjörg og Kristín...hlakka til að sjá ykkur næstu helgiLaughing



En I'm out...skemmtiði ykkur þið sem ætlið að djamma fyrir mig og alla sem eru í Kreppuþunglyndi (djók)!

Ísland er Best?

09. október 2008 klukkan 20:51
Núna er ég gjörsamlega orðin sýrð í hausnum á allri umræðunni um Kreppuna, bankana o.s.frv. Ég hlusta á umfjöllun um þetta 8 tíma á dag í vinnunni, svo þegar ég kem heim er kveikt á sjónvarpinu og þá heldur umræðan áfram. Manni er farið að bregða þegar maður heyrir talað um annað í fréttatímum en Kreppuna. En mér var nú alveg nóg boðið þegar ég heyrði frétt núna kl.16:00. Þá var verið að furða sig á því að Geir H Haarde hafi kallað einn fréttamann fífl og dóna. Svo hvernig væri nú að slaka aðeins á greyið manninum, ég þori að veðja að Geir sé varla búinn að ná 2ja tíma svefni í allaveg viku, og þvílíkt álag á einum manni og ábyrðin er gríðaleg, og það að hann hafi aðeins farið út fyrir strikið finnst mér ekki hæfilegt að búa til fréttatíma um það og hneykslast þvílíkt á því!!! Take a Chill Pill!!

En annars allt gott að frétta...Laaangþráð helgi nálgast óðum og ætla ég að slappa vel af, Friddi baby er reyndar að koma suður og ætla ég að sjálfsögðu að eyða dágóðum tíma með ástargoðinu mínu hehe:) Kannski að maður kíki eitthvað út á lífið með honum, edrú að sjálfsögðu;)

En ein spurning, ég er mikið búin að vera að pæla í einu námi, veit ekki alveg hvað það kallast, sjúkraliði eða bráða- s.s svona manneskja sem keyrir sjúkrabílum og kemur á slysstaði..Getur einhver sagt mér hvað maður lærir þetta og hvað í ósköpunum þetta starfsheiti heitir hehe??

Until Later...

Munið að það besta í lífinu er Ókeypis...það segir Unnur Birna allavega;)